♥ Anna Ester =)♥

♥ Velkomin =) Kvittu svo fyrir þig ;)♥

17.04.2007 12:53:46 / annaester

ATh

http://annaester.bloggar.is

Myndirnar verða bara geymdar hérna..


» 2 hafa sagt sína skoðun

16.04.2007 18:54:04 / annaester

NÝTTNÝTT

Jæja þá er hið árlega staffapartý ársins búið, og váá ég hef ekki skemmt mér jafn vel! Við hittumst allar + Óli Einir kl 18 niðri Tvist þar sem það átti að vera ratleikur "Tvisthlaupið" og vorum ég og Arna saman í liði það byrjaði samt þannig að á fyrsta miðanum stóð; ,,Hvar hafa allir eyjamenn sótt þekkingu sína í gegnum árin"    ,,Hver er Lilli Klifurmús ??" Auðvitað hlupum við Arna þá niðri Leikhús, en við áttum sko alls ekki að lenda þar heldur upp í barnaskóla, og þaðan fórum við útum allt, og var þetta þræl skemmtilegt.. EFtir þetta fengum við 1 klukkutíma til þess að fara heim og græja okkur og mæta heim til Bigga og Lóu að borða.. Svo fórum við í snilldarleiki fengum einhvað nafn á ennið á okkur og áttum svo að giska "hver er ég ?". Svo fórum við í annan leik þar sem við fengum blað þar sem stóð einhver sjúkdómur og vorum við svo með tannstöngla á milli tannana og svo átti ég að segja "Amma mín er rosalega veik, hún er með kynfæravörtur" og það mikið hlegið af þessum leik, þar sem næsta manneskja átti að reyna að skilja hvað maður var að segja.. Svo var haldið á ballið en það var stoppað frekar stutt, þar sem ég hata techno tónlist og það var gjörsamlega troðið af fólki.. og af 9 og 10 bekk... En þá var bara kíkt á drífanda sem var sko ekkert skárra þar.. þannig maður var komin heim um hálf 4...

 

Enn allavega þá er ég búin að henda myndunum inn, en eru samt skemmtilegri myndir hjá Karen Ösp http://blog.central.is/afroditur

OG svo að lokum eins og þið sjáið þá er sko Karen að flytja til Noregs eftir 13 daga.. Og við eigum allar eftir að sakna þín feitast, því þú ert bara æðisleg;) Var bara gaman að vinna með þér síðustu vaktina.. En ég óska þér góðs gengis í Noregi og einnig á Höfn, veit að þú átt eftir að standa þig eins og hetja þarna úti við að vinna á hótelinu og einnig í háskólanáminu á höfn, kemur kannski heim með eitt stykki Norskan fola ?;) þú verður dugleg að heimsækja eyjarnar ;)

 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

25.03.2007 22:54:33 / annaester

Ótrúlegt en satt

Ég lennti í ansi skemtilegu atviki í vinnu á miðvikudaginn eða á fimmtudaginn annað hvort, þá var ég með Söndru í vinnu og var ansi vont veður.. Aldís og Kristjana kíktu inn í tvist og á sama tíma kom Himmi Nínon og Sæbjörg í lúguna og ætluðu að fá inneign hjá símanum fyrir 500 kr.. ég ætlaði að rétta Himma inneignina og hélt fast um hana en hún fauk einhvert lengst og hljóp Himmi á eftir henni, Við kölluðum bara á hann og sögðumst bara láta hann fá nýja í staðinn.. Eftir svona 5-6 mínótur leit ég út um gluggann og fauk þá ekki bara inneignin á gluggann eins og hún var að sogast að mér, og váá Aldís og Sandra ætluðu að argast úr hlátri og öskruðu,held að það hafi komið ágætis sixpack eftir þetta atvik..  þetta væri fyndnara ef þið væruð vitni af þessu en mér fannst eins og ég þyrfti að kaupa inneignina því mér fannst hún sogast af mér, en því miður var ég hjá vodafone þannig ég hafði varla meira við hana að gera.. !

Inneignin á glugganum !
En jæja svo er það rvk á föstudaginn og x-factor - svo ferming á laugardegi og hnakkabærinn.. verður stuð :)

» 5 hafa sagt sína skoðun

26.02.2007 19:10:43 / annaester

Nýttað

 

Takk fyrir æðislega helgi, bara gaman ! ;) fékk alveg helling í afmælisgjöf og ekkert smá sátt með allt saman :) er búin að setja inn myndirnar frá því um helgina einnig..

Fjörið byrjaði á fimmtudag þar sem fjölskyldan kom í mat og fékk ég nokkra pakka þar :

Amma + afi : bol + kertastjaka

Ásta og Maggi : bodylotion + spennur

Ása og Finnsi : Vasa

Á föstudeginum bauð ég svo bara stelpunum í mat til mín, þar sem að Grétar var að fara upp á land að keppa ákvað ég að hafa bara stelpupartý þó svo að 2 drengir kíktu.. og héldum við svo á þröstin og Lundann sem sökkaði feitt, þar sem var bara landslið Vestmannaeyjinga mætt þar fyrir utan sumt fólk ;)

Búin að skreyta borðið og alles ;)

en frá þeim fékk ég

Örnu + Margrét : body + bol

Rakel Ósk : bol

Svövu Kristínu : bol

svo fékk ég pakka frá systur minni : Belti + veski

Mömmu og Pabba : jakka + kjól + skó

Grétari mínum : Diesel kjól + leggings

Laufey og Eyþóri tengdó : kjól + leggings

Takk fyrir mig þið öll ekkert smá ánægð ;) 

Á laugardeginum var bara eitt með Svövu hittumst svo heima hjá henni og fengum okkur í glas, bara skemmtilegt partý þar ;)

Jáá hún Svava mín fór á kostum má nú segja ;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

21.02.2007 16:13:06 / annaester

Komið að því !

 

Hvað segiði er ekki málið að fara út á lífið um helgina ???? ;) Fagna því að ég verð 18 ára on FRIDAY !

Vonandi verður e-ð skrall ;)


» 9 hafa sagt sína skoðun

09.02.2007 14:21:52 / annaester

Jáhá :)

 

Var komin með svo mikið ógeð af því að sjá gamla bloggið á síðunni þannig ég ákvað að skella smá inn ;)

En ætla að byrja á því að óska Guðrúnu Lenu og Palla til hamingju með litlu gullfallegu prinsessuna sína! Bara sætust :) Stal myndinni frá Höllu sorry ;|

 Mæðgurnar ;)

hey svo bara ball um næstu helgi ?? verður maður ekki að fá sér í glas??? díí er ekki buin að drekka síðan á þjóð og ég ætlaði að verða edrú fram að afmælinu mínu, en það er nú bara helgina eftir á.. þannig smá freystandi að fá sér smá ;) Annars var helgin fín Kíkti í eyverjasalinn og hann TROÐFYLLTIST svo sem ekkert nýtt og löggan kom náttúrulega, en þá voru hvort sem er allir að fara á pöbban..

Svo öll fjölskyldan mín að fara út yfir þjóðhátíð og verð ég bara ein eftir, og mér finnst það ekkert svaka gaman, og er bara hálf stressuð yfir því, en mér var boðið að fara með, en valdi þjóðhátíð í staðinn EINS gott að hún verði sú besta hingað til þó svo það verði erfitt að toppa þjóðhátíð 2006 ;)

Svo annað Það er búin að plana ferð erum að fara 14 saman á Marmaris á Tyrklandi SHIT HVAÐ ÞAÐ VERÐUR GAMAN !!!

GAman gaman !! ;D

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

28.01.2007 17:16:37 / annaester

Janúar !

Sorry Karen ég varð að stela þessu hjá þér :) Allavega þegar ég las þetta þá hlóg ég upphátt úr tölvunni.. Bara snild ;)

Þú ert 90´s kid ef þú:

Þú getur klárað þessa setningu [ice ice _ _ _ _ ]

Þú færð ennþá "urge" til að segja "NOT" á eftir næstumþví öllu

Það var gert út um málin með "steinn skæri blað" eða "ugla sat á kvisti"...

Þegar við fórum í feluleik þangað til við gátum ekki meir

Þegar við vorum vön að hlýða foreldrum okkar...

Þú hlustaðir á útvarpið allan liðlangan daginn til að bíða eftir uppáhaldslaginu þínu, til að taka það upp á kasettutækið..

Þú manst eftir því þegar Super Nindendos og Sega Genisis urðu vinsælir

Þú horfðir alltaf á America's Funniest home videos

Þú manst eftir því þegar Jójó voru kúl

Þú horfðir á Batman, Aladín, Turtles og Pónýhestana...

Þú manst eftir sleikjóunum sem voru á hring til að hafa á puttanum..

Þú hefur ekki alltaf átt tölvu, og það var töff að vera með Netið

Og Windows '95 var best

Þú safnaðir lukkutröllum

Og áttir vasadiskó

Þú kannt Macarena dansinn utanað

Þú veist af hverju 23 er kúl tala

Þegar strigaskór með blikkljósum voru málið

Og þú leigðir spólur, ekki dvd,

Og það var eiginlega enginn með símanúmerabirti

Og þegar við hringdum í útvarpið til að reyna að fá uppáhalds lagið okkar spilað til að hlusta á í vasadiskóinu

Áður en við áttuðum okkur á því að allt mundi breytast.

Váá hvað ég er ekki að nenna að setja neitt hingað inn, nema um síðustu helgi var Fív Ball Óli Geir DJ og einhver Andri, leiðilegasta ball sem ég hef farið á þar sem mörg lögin stóðu í 15 mínótur bara Tecnó, En allir aðrir skemmtu sér sem voru að drekka en ég var edrú...

Svo núna um helgina. Föstudagur - Vinna rólegheit....Laugardagur : Náði í Írisi og græjuðum okkur svo fórum við til Margrétar, og þaðann í afmæli til Olgu, þaðann til Daða magg, og þaðann til Þórgunnar og þaðann til Daða.. Segi ekki meir!

Er málið að fara 2 X til útlanda í sumar ??

Grikkland eftir sjómannadag og Marmaris með GEÐVEIKT skemmtilegu fólki eftir þjóð ?? váá TILHLÖKKUN !!!

læt fylgja smá myndir með hérna En er búin að setja inn myndir frá því í gær !

Einnig eru myndir hérna

http://margretrut.bloggland.is

Dagatalið aðeins 26 dagar í afmæli mitt !! ;D

Margrét og Ég


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.01.2007 20:27:52 / annaester

Komin heim :)

Gleðileg Jól og Gleðilegt nýtt ár

 

Þá er maður sko komin heim frá Orlando og strax byrjuð í skólanum. Það er ekki hægt að lýsa þessari ferð í nokkrum orðum en ég get alla vega sagt að þetta var yndisleg ferð í alla staði : )

Þann 16 desember var lokaball Fív og útskriftarveislur, ég og Guðrún Bergrós vorum reyndar í vinnu en Biggi var svo yndislegur að leifa okkur að loka hálf 12 svo við gætum kikt í útskriftaveislurnar.. Við fórum strax eftir vinnu niðri Akóges þar sem ég hitti á undan Örnu Björgu, Margréti Rut og Svövu Kristínu og var haldið með þeim niðrí Akóges og var síðan haldið á ball þar sem ég fór að dansa við Grétar minn og var verið að spila e-ð lag með Sálinni held ég og sagði svo söngvarinn að loknu lagi “þetta var tileinkað Grétari og frú Önnu” heh voða gaman.. En ég held að ég hafi einungis heyrt 2 lög af ballinu þar sem við ákváðum að fara snemma heim því ég var að fara upp á land deginum eftir. Ég hélt svo upp á land að hitta mömmu og pabba til þess að eyða með þeim síðustu dögunum fyrir jól.. og fórum við í heimsóknir um alla reykjavík og í afmæli til ömmu sem var bara gaman hitti alla fjölskylduna mína og ná að kveðja þau..

Seinnipart Þriðjudags 19 var haldið út í Leifsstöð og var ferðinni haldið í flug til Flórída eða réttara sagt Orlando.. og hef ég ekki upplifað leiðilegri ferð út það voru ömurlegar bíómyndir og vondur matur í vélinni og 8 tíma flug.. úff manni var farið að leiðast smá enda sofna ég sko aldrei í flugvélum, og bara einhver maður við endann hjá okkur þannig maður þorði varla að spurja “Má ég fara að pissa ? “ En hey maðurinn þekkti Kareni Ösp og Erlu Signý hann var frá höfn..  Þegar að það var komið í húsið okkar var farið sko beint að sofa og vaknað snemma morguninn eftir..

Svo var það nátturlega aðfangadagur sem var voðalega góður bara það var eldað góðann mat og svo opnað pakkana með ekkert jólatré en það var svo sem allt í lagi.. og maður fékk alveg heilann helling : )

Þanngað til 26héngum við einungis í mollum og búðum dag eftir dag þó svo ég kvarta ekki, en það komu smá chill dagar inn á milli.. En alla vega þann 26 fórum við í Disney Land sem var allt mjög flott þó svo að mér fannst vanta fígúrurnar á labbinu um garðana.. Þann 27 fórum við svo á LA Lakers – Orlando Madig sem var bara gaman að hafa farið á NBA leik voða gaman : )

Þann 28 var mamma mín 40 ;* leitt að ég hafi misst af afmælinu hennar : ( OG ég held að við fórum í Wet and Wild þann dag, bara gaman !

Svo var það Gamlárskvöld sem var frekar skrítið vorum einu sem skutu upp í hverfinu okkar þó svo það var gaman ; )

 

Takk Kærlega fyrir mig Laufey og Eyþór ;*;*

En alla vega sjáið bara myndir nenni ekki að segja meira frá ferðinni : )

 

 

 

 

En alla vega þá er gott að vera komin heim þó svo ég væri til í að hafa veðrið hérna..

Búin að kaupa mér árskort í ræktina og sund.. þannig núna verður maður bara dugleg á samt ekki tíma fyrr enn á mánudaginn hjá kallinum sem er að sjá um þetta eða kenna manni og láta mann fá prógram, heppin að hafa fengið tíma þá er upppantað þanngað til 22 janúar :o

Jæja styttist í afmælið mitt og býst ég við að hafa e-ð teiti þar sem ég verð 18 ára á föstudegi alla vega er ég að hugsa um það;)

En það eru nyjar myndir hérna aðalvalmynd

  • Þrettándinn
  • Aðfangadagur
  • Gamlárskvöld
  • Ripleys
  • NBA leikurinn
  • Orlando
KV Anna Ester

 

 

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

11.12.2006 19:14:07 / annaester

JÓLAFRÍ

Jáá þá er maður sko loksins komin í Jólafrí og á leiðinni til FLORÍDA!! awwwwww8) Prófin gengu ekkert of vel eða alla vega lala kemur í ljós hvað maður fær út úr þeim! gaddem hvað ég hata próf:o Ekki minn stíll :^)

Svo fór litla dúllusystir mín ein í bæinn með vinkonum sínum í fyrsta skiptið í dag því hún ætlaði að kaupa sko jólagjöf handa Mömmu og Pabba En hún keypti einungis 3 gjafir handa bestu systir sinni ! Bara kjútí :* Bíð spennt eftir pakkanum frá krúttinu mínu ;** Þú ert best :*

Við systurnar með mömmu :***

OG svo þann 30 des munum við halda á svaka leik ! NBA LA Lakers - Orlando Magic! átsh ég held að það verði Geðveikt því að Eva Longoria hringdi í mig og sagði við mig að hún tekur frá fyrir mig sæti við hliðiná sér ;) Best Friends sko ! 

 

Ætli maður styðji ekki þessa ?? Annars veit ég sko ekkert um körfubolta og þegar að Grétar hringdi í mig og sagði að við værum að fara á hann þá sagði ég bara Jáá okey, og svo fór ég að tala við Kollu og hún öskraði af reiði þannig að þá skildi ég að þetta væri svolítið mikilvægur leikur ;) En Jæjaaa bara 1 vika í flug vijj ;)

Helgin var afskaplega róleg átti helgarfrí og það var bara awsome! Föstudagur horfði á X - Factor og fór svo niðri gólfskála til Grétars þar sem ég upplifi martröð af barni en nóg um það! Laugardagur fór maður heim til Leifs bara að horfa á tónleika.. og svo svaf maður bara út á sunnudag og eitt, Grétar vakti mig til þess að biðja mig um að rétta sér símann held ég, og mér fannst hann segja réttu mér kertið En það var fantaglas við hliðiná mér og ég tók það bara og helti því yfir hann og allt rúmið ! og svo vaknaði ég dálítið wírdó, en ég er rugluð þegar það er verið að reyna að vekja mig ; ) heh...

Svo þessi Bílslys þetta ætlar aldrei að taka enda ! 29 látnir á árinu og þar á meðal 2 Vestmannaeyingar ! OG nánast á sama stað.. Þetta er bara skelfilegt :^) OG ætla ég að vona að næsta ár verði ekki jafn slæmt ;(

HEy Svo átti Kristjana X- Tvistgirl 20 ára afmæli á Sunnudag Til hamingju með það ;** og skírði hún einmitt prinsessuna sína hana Valdísi Bylgju sama dag  ; )

Ein mynd mæðgunum í lokin! Bara sætar !! ; )

Jæja bið að heilsa í bili !!

- AnnaEster -

Tekin ein fjölskyldumynd áður en maður fer ! Á eftir að sakna þeirra Mest í heimi ;***


» 5 hafa sagt sína skoðun

29.11.2006 21:21:46 / annaester

Nýtt Nýtt

Nei Karen mín ég er sko ekki död!! ;) ég hef bara sko ekkert til þess að blogga um, nema ákvað að skella núna smá færslu inn fyrir prófin. Ég er orðin svolítið stressuð fyrir þessi próf fer í fyrsta prófið mitt á morgun í Gule Handsker sem að gildir aðeins 5% af lokaeinkunn sem mér finnst varla tilgangur að læra undir ! En svo fer ég í fyrsta lokaprófið á Þriðjudag.. Ég er engann veginn að átta mig á að þau séu að byrja þar sem mér finnst ég búin að vera í skólanum í svona mánuð! En jæja önnin eftir áramót verður lengri að líða því hún er bara alltaf löng ;)

En Akkurat í dag eru aðeins 20 DAGAR í Flórída Gosh hvað það er stutt, maður fær nú smá fiðring í magann! Geri ekki annað en að skoða heimasíðuna hjá Victoria Secret 2 x á dag og ég held að ég sé búin að segja um nærrum helminginn að ég ætli að kaupa.. Svo er víst Alda að senda okkur myndir eða bæklingana af mollonum þarna úti Því þau eru víst svakaleg !! 

Og vitiði Hvað þann 30 desember munum við fara á NBA leik LA Lakers – Orlando Magic!! Fyrst fattaði ég ekkert á hvað ég væri að fara en svo talaði ég við hana Kollu mína og hún argaði hún var svo reið ,, Að einhver stelpa sem veit ekkert á hvað hún er að fara á fær að fara á svona leik “ En kannski hitti ég Evu Langoriu HVER VEIT !! ;)

 

Ætli maður verði þarná á aðfangadag eða hvaað??

 

 

KV AnNaEsTeR!;)

 



 


» 3 hafa sagt sína skoðun

06.11.2006 14:52:33 / annaester

Diskóball og fjör ;)

Jæja þá er helgin afstaðin :P þar sem hún byrjaði eiginlega á fimmtudaginn þar sem var vetrarfrí í Fív ;) Ég fór aðeins niðrá hárgreiðslustofu að þrífa og ganga frá og ákvað svo bara að fara heim að henda mér í önnur föt. Sótti svo Írisi í vinnu og við fórum í bíltúr og svo á conero þar sem að við vorum að spjalla e-ð við Róbert Marshall eða e-ð semhann heitir, og hann var mjög skemmtilegurrrrr..... enduðum svo á því að fara niðri Eyverjasal þar sem strákarnir voru að spila póker, þar voru Kolla, Sólveig, Sara og Þórgunnur og vorum við bara e-ð að spjalla þanngað til að þær fóru þá bjuggum ég og Íris til nýjan snóker leik því við kunnum ekkert hitt og hann byggist bara á svindli en okey þegar að við vorum að fara kom löggan og hvartaði undan hávaða...  ég endurtek hávaða það var ekki einu sinni hávaði þarna strákarnir voru að spila og við vorum í snóker hvers konar hávaði átti að hafa verið En okey við erum unglingar og meigum ekkert ;)

Á föstudeginum fór ég í vinnu með Helenu og náði svo í Írisi eftir vinnu og fórum við heim til Baldvins og sátum þar að spjalla við Grétar, baldvinn og Berglindi og svo var bara haldið heim að sofa :o Því að ég og Grétar áttum að fara að skutla e-r bíl í herjólf um morguninn, vöknuðum ógeðslega þreytt ég náði ekki að sofna fyrr en hálf fimm um morguninn og byrjuðum að leita af lyklunum en fundum þá hvergi og þá byrjaði pirringurinn að æsa sig, En nei Laufey hafði vakið okkur um morguninn áður en hún fór í vinnu til þess að segja okkur að hún myndi fara með bílinn, en það er allt hægt að segja við mig í svefni og ég svara bara einhverju því að svarið frá mér var "jáá ég held honum"  heh;) Þannig við lögðum okkur aftur..

Svo var ball og óvissuferð um kvöldið.. byrjaði reyndar á að fara út að borða með Laufey og fór svo heim til Kolbrúnar og fórum svo uppí skóla þar sem rútan beið.. Þar var haldið í einhverja rútuferð og svo niðrí Eyverjasal þar sem var gítarspil og e-ð dót.. Svo kom rútan að sækja okkur en ég og Íris nenntum sko engann veginn aftur í rútuna þannig við fórum með Olgu og við mættum sko FYRSTAR á ballið hah við gjörsamlega áttum staðinn..!

En ég nenni ekki meir ég er búin að henda myndonum inn sem eru hérna til hliðar ;o)

Kv Anna Ester;)

Picture 091


» 4 hafa sagt sína skoðun

01.11.2006 16:13:17 / annaester

Nóvember.

Fyrir akkurat 17 árum síðan kom þessi undurfagra snót í heiminn að nafni Íris Huld Gunnarsdóttir hans Gunnars í Vegg.. Frá því að Íris flutti hingað til eyja hefur hún alltaf verið ein af mín bestu vinkonum sem ég mun seint eða aldrei gleyma, reyndar hefur vináttan aðeins minnkað en vonandi er hægt að bæta það bara.. Jáá hún er 17 ára sem þýðir að hún er orðin lögleg á götunum bráðum þar sem hún getur ekki tekið prófið strax því kennarinn er í fríi.. En ég ætla að vona að þú farir vel í umferðinni og ég á sko inni hjá þér 1 rúntinn ;) þar sem þú drógst mig útí bíl þegar ég fékk bílpróf...;) En Íris mín njóttu dagsins og láttu dekra við þig;)

Love you þín vinkona Anna ;)

En úr því í annað þá var verslunnarmannaballið um helgina og var bara gaman ;) skemmtiatriðin voru snild og drukknu manneskjurnar voru algjörir snillingar undir borðum að leita af skóm og læti ;)

Enn takk fyrir snilldarhelgi ;)


» 7 hafa sagt sína skoðun

24.10.2006 16:11:27 / annaester

Jææææja !

Seasons

Ji minn! ég vaknaði kl 7 í morgun til þess að fá mér að drekka og leit út og viti menn að það var bara allt á kafi í snjó!! Ég hata snjó!! og ég ætlaði ekki að ná að sofna aftur þar.. eina sem ég hugsaði um hvað mig hlakkar til að komast til Flórída aðeins 55 dagar! en ég á eftir að sakna mömmu, pabba, systir mína, afa og ömmu og alla alveg þvílíkt mikið! Verður skrítið að hafa þau ekki hjá sér á jólunum og eflaust skrítið fyrir þau! En það koma sko önnur jól eftir þessi og ég held að þetta verði bara gaman að fá að vera með mínum yndislega kærasta yfir jólin og yndislegu fjölskyldu hans! Við getum þá bara verið á bikiníi í sundi á aðfangadag á meðan að allir eru að stressast hérna á Íslandi í kuldanum;)

En helgin var aftur á móti mjög róleg hjá mér, á föstudeginum var haldið uppí höll á Bubbatónleikana með Grétar og tókum við mæður okkar með og varð ég fyrir miklum vonbrigðum því ég kunni 2 lög og svo bara talaði og talaði hann og það var geðveikt gaman eða hitt og heldur.. Eftir tónleikana tók ég Írisi í bíltúr og  kíktum við til Pálma og þar var svona strákapartý sem allt í einu fylltist húsið og bara af einhverjum en það var bara gaman :) Laugardagurinn var ömurlegur var farin að sofa kl hálf 12 frábært, alltaf jafn vinsælt. Var svo að vinna alla helgina og að drepast í bakinu þar sem ég hrapaði niður stigann í framhaldsskólanum á þriðjudaginn og má segja að ég hafi fengið ljótasta olnboga í heimi hann er svo marinn! En ekta ég alltaf jafn heppin í bakinu.. Svaf ekki í 2 daga nema kannski svona 4 tíma í mestalagi, því mér fannst svo vont að liggja.. En er að lagast... Svo í gær vorum ég og Grétar búin að vera saman í 2 ár..

En annars lýst mér betur á næstuhelgi þar sem verslunnarmannaballið er þó svo mig langi ekkert svakalega væri til í e-ð gott staffapartý í staðinn eins og Silvíu Nótt partýið hjá okkur þvílíkt skemmtó!

Jáám svo er ég búin að kaupa mér bíl eða kannski svona mánuður síðan Toyotu Corolla, sem er bara nice þó svo að þetta sé dýrt.

Rakst á helvíti fyndið myndband! Algjört rassgat ;)

http://www.youtube.com/watch?v=2TQVEeQ0X_4&mode=related&search 

Svo rakst ég á sorglegt myndband!

http://www.ekincaglar.com/coin/flash.html 
 

Horfið á þetta þið hafið gott af því að sjá hvað við höfum það gott

En allavega kveð ég í bili;)

*Kv Anna Ester*


» 7 hafa sagt sína skoðun

16.10.2006 21:31:56 / annaester

GAMLIR TÍMAR!

Hverjir muna ekki eftir gömlu "góðu" tímanum þegar við vorum öfga svöl eða hitt og heldur eigum við að orða það að við vorum svona hálfgerð Nörd?? Í dag sátum ég og Eygló í tíma og fórum þá allt í einu að hugsa um gömlu minningarnar í grunnó, og gátum við talið endalaust upp og við hlógum og hlógum ;) En ég ætla að koma með nokkra punkta;)

  • ...Muniði þegar að Kolli kom í leðurjakkanum í skólann og með hárið greitt aftur, og var heil geltúpa í hárinu á honum og hann fór að syngja og dansa fyrir okkur með Elvis Presley sem hann var búinn að æfa heima lengi.
  • Muniði þegar að Bylgja Dögg skoraði hjá Gaua Ólafs í frímó og Gaui fór að gráta hann var svo sár.
  • Muniði þegar að Íris var alltaf að sjá dána ömmu sína í Gufubaðinu og með kaffibollann eða hnífinn fyrir ofann rúmið sitt, hún sá sko margt.
  • Muniði eftir Bekkjarkvöldinu sem endaði að allir voru grenjandi því við sáum stelpu með tígó inní skólanum, og var sennt alla heim.
  • Muniði eftir skíðaferðarlaginu fræga í 7 bekk þegar við stelpurnar földum Gaua kvennabósa undir sængunum okkar þegar við áttum að vera sofandi og var allt brjálað þegar Gaui var fundinn og var hann rifinn á háronum út úr herberginu.
  • Muniði eftir kallinum sem var með okkur í skíðaferðalaginu sérstaklega gamla, og svo vorum ég og Íris að skoða morgunblaðið þegar við sáum minningar grein frá honum og við grenjuðum og grenjuðum.
  • Muniði þegar við stofnuðum Fótbolta og Pottavinafélagið og vorum við svona 30 manns alltaf saman og löbbuðum svo hringi í bænum, öll saman í röð.
  • Muniði þegar við hittumst alltaf uppí hrauni á hverju kvöldi fullt af krökkum til þess að fara að fjasteringast og kom Sæþór Wezt alltaf með fulla vasa af fjasteringum.
  • Muniði þegar við bekkurinn vorum alltaf í skólasundi og fengum að fara í pottana eftir á og við fórum alltaf í Sannleikann prósent eða mana og voru alltaf bara 2-3 stelpur sem völdu mana sem sagt Erna Sif, Íris og Alexandra.
  • Muniði þegar ég, Tanja, Íris og Erna Sif stofnuðum leynifélagið Sports og við ætluðum að rannsaka allt sem gerðist á hrauninu, því við vorum alltaf að lenda í einhverju þar.
  • Tanja mannstu þegar við vorum útá leiksskóla með Jóa og Bh þegar við sáum 2 stráka valhoppa og við sprettum öll heim til Jóa af því við héldum að þetta væri Bjöggi, En þá voru það bara Ellert og Hjálmar, En málið var að bjöggi var alltaf að drulla yfir þá að hanga með svona smápíkum eins og okkur.. En svo var bara Bjöggi einn af okkar bestu vinum.
  • Muniði þegar ég, Tanja og Íris stofnuðum B-gangers Bella, Brena og Bells
  • Tanja mannstu þegar við vorum með Gauta og Valtýr og við sögðum þeim að fela sig bakvið grindverk á meðann að mamma fór út, því við vildum ekki láta vita að við værum að hitta stráka.
  • Muniði í skólaferðalaginu í 10 bekk Svefnpokafélagann minn.
  • Rakel mannstu þegar við vorum alltaf að fá að gista saman og sérstaklega í desember þegar við sögðumst trúa ennþá á jólasveina 12 ára gamlar til þess að fá í skóginn.
  • Muniði þegar ég lét mig detta í rúmið hennar Rakelar og ég handlegsbrotnaði.
  • Muniði þegar við fótboltinn fengum að sofa í Týheimilinu og Katla hraut svo mikið að við tróðum tannkremi í nefið á henni.
  • Muniði þegar að Íris, Birgit og Alexandra ætluðu í Free style en þær kunnu ekkert að dansa, nema einhvern kjúklingadans.
  • Muniði eftir kennaranum okkar sem var með 12 putta.
  • Muniði þegar við vorum alltaf að dansa og syngja með Spice Girls.
  • Muniði þegar að Íris og Birgit tóku Bor í nef lagið ?
  • Eygló mannstu þegar ég klæddi mig alltaf í kjól og þú í kallaföt og svo fórum við alltaf að dansa.
  • Eygló mannstu þegar við vorum alltaf niðrí KA hjá mömmu þinni að fikta í búðarkassanum og vorum í búðarleik.
  • Muniði eftir páfagauknum mínum sem talaði? Geðveikt sport..
  • Man einhver eftir því þegar ég átti Bangsa dúkku sem ég kallaði bróður minn og ég sagði öllum frá því að ég ætti bróður, og voru allar konurnar á leiksskólanum farnar að spurja mömmu af því, En ég gerði gat á rassinn á honum svo ég gæti mælt hitann á honum þegar hann var lasinn.
  • Finnsi mannstu þegar ég var alltaf pínulítil að rúnta með stóra frendanum og ég söng lögin í aftursætinu með Meat Love.  
  • Erna V mannstu eftir því þegar þú varst alltaf með búðarkassann í afmælinu mínu ,, Rænum peningonum Rænum peningonum".
  • Tanja Mannstu þegar við leigðum alltaf Scary Movie og slökktum alltaf á fyrsta atriðinu því við þorðum ekki meira.
  • Hvernig gat ég gleymt því þegar að ég og Tanja brutum flottasta kertastjakann heima með sundbolta af því við vorum alltaf í fótbolta en sögðum við mömmu að við vorum að "skúra" gólfið.
  • Ég og Tanja fundum hryllingsmynd inn í skáp heima sem hét Ógnvaldurinn og við földum hana alltaf þegar einhver kom heim því enginn máti vita þetta hún var svo bönnuð börnum.
  • Þegar að Tanja var að Rannska allt upp á hrauni og fann allann fjandann!
  • Þegar að Halli var mesti töffarinn í bekknum.
  • Þegar að Frikki var alltaf að reyna að kyssa allar stelpurnar í frímó !
  • 12 putta kennaranum sem allir heldu að hún væri útlensk " we are great!"
  • GVUÐ stelpur þegar við vorum með bækur og skrifuðum bréf á milli haha "hverjum ertu skotin í ? hvað gefuru mörg prósent i þennan?"

Jæjaaaaaa þá svona er þetta sem ég man ;) Enn commentið ef þið finnið e-ð meira;)


» 17 hafa sagt sína skoðun

10.10.2006 13:32:15 / annaester

GRÍMUBALL! ;)

   Ég hef einfaldlega ákveðið að koma hingað aftur yfir vegna þess hve ÓGEÐSLEGA leiðilegt er að henda inn myndunum á bloggar.is tekur bara 3 daga.. Þannig alltaf sama flakkið á manni :o|

EN váá byrjum á helginni Föstudagurinn var bara rólegur hjá mér og Grétari leigðum bara vídéó og sofnuðum fyrir 12 enda leikur hjá kallinum deginum eftir en var það bara frekar fínt.. ;)

En laugardagurinn sem mér var búið að hlakka svo til að ég gat varla beðið en þá var haldið Grímuball í Týsheimilinu og voru Ingó Idol og Veðurguðirnir að spila.. og VÁÁ þetta var skemmtilegasta ball sem ég hef farið á.. Ég fór heim til Kolbrúnar Birnu um 9 til þess að græja okkur og var Margrét þar líka, við byrjuðum að græja okkur og sötra og héldum svo í afmæli til Fanneyjar þar sem svo troðfylltist húsið hjá pæjunni enda var hún 18 Ára um miðnætti ;) Svo skellti ég mér á ballið með Gaua, Kolla, Eyþóri og váá ég bara man ekki hverjir voru fleiri með okkur í bílnum en ég held samt að Anton og Himmi hefðu verið þar! en alla vega þá var fullur bíll og var látið Kolla leggjast yfir okkur og sáum við sko hreinlega eftir því AFHVERJU KOLLI?? Stæðsti maður eyjarinnar og var það mikil kvöl á leiðinni niðridyr!! Kolli þú ert YNDI ;) En alla vega dansaði ég af mér lappirnar og þessi hljómsveit á sannarlega hrós skilið hvað þeir stóðu sig vel ! *klapp fyrir þeim* Þar sem þeir tóku 11 aukalög ekki meira né minna ;)  Ég vill líka þakka nemendaráðinu fyrir æðislegt ball! Eruð búin að standa ykkur hörku vel! (enda kallinn minn í þessu) ;) og Fyrir að skila Týsheimilinu sem best að ykkur svo við fáum það nú kannski aftur ! Svo Ingibjörn og Leifur og Grétar Fyrir dansinn allt ballið ! BARA GAMAN!!;)

Sunnudagurinn svaf maður til 16 : 00 og fórum þá að versla í matinn Af því við erum svo mikið ein heima :)

Hey Aníta Ýr smá fyrir þig það eru aðeins 69 dagar að við förum til FLÓRÍDA mmm;) 

Myndirnar af ballinu eru komnar hérna í myndir vinstra megin í aðalvalmynd ! Endilega skoða og commenta;)

LaTeR!:*


» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
EG og Gr�?�?�?�??�?�?�â�?��?��?�?â�?�š�?�??�?©tar
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1645 dögum
Klukkan
Dagsetning
10. febrúar 2012